GuðnýÓlafía - Hænuvík
Nýtt bloggGuðnýÓlafía
Er loksins búin að finna bloggsvæði sem hægt er að setja inn myndir. Var að blogga á nýtt blogg haenuvik.blog.is. Ætla að prufa moggabloggið :)Mikið að gera!GuðnýÓlafía
Góðan daginn!Ég hef ekkert sett hérna inn í langan tíma. Búið að vera mikið að gera og svo er ég að reyna að koma upp síðu einhverstaðar annarstaðar þar sem ég get sett inn myndir. Ekkert gaman að blogga en geta ekki sett inn myndir líka.
En það helsta sem hefur skeð síðan síðast.
Við Öddi fórum suður á Akranes 7. janúar og þurftum að bíða í hálfan mánuð eftir að litla krílið okkar fæddist. Við fórum síðan á sjúkrahúsið um morgunin á bóndadeginum og í hádeginu var ákveðið að ég færi í bráðakeisara því það hægðist svo á hjartslættinum hjá barninu. Rétt eftir eitt fæddist svo strákur. Við komum heim á þriðjudeginum, 4 dögum síðar. Ég er hress og var fljót að jafna mig og strákurinn er algjört draumabarn. Sefur vel og er algjört yndi.
Annars er allt gott að frétta úr sveitinni. Ég er bara ennþá á Patró með strákinn en við fórum í sveitina á síðustu helgi og gistum í fyrsta skipti. Það eru allir hressir og pabbi hleypti hænunum út fyrir ca viku síðan og fá þær að fara út á hverjum degi síðan.
Veikindi og jólin, útskriftaveisla og áramótGuðnýÓlafía
Það hefur gengið mikið á síðan síðast. Það er alveg skelfilega syfjandi að vera óléttur síðustu vikurnar. Bara sofa 16 tíma eða svo og þá er maður góður enda fer dagurinn orðið í lítið annað en að sofa og sofa og borða til skiptis og svo er eins og rykið margfaldist og sóðinn ég finnst allstaðar rusl og mega taka til.Ég ætla að fara stutt yfir sögu síðan síðast.
Aðfangadagur var æðislegur heima í sveitinni. Gefa kindunum og svo voru pakkar og góður matur. Mamma eldaði svína einhvað eins og venjulega. Svo tók það frekar langan tíma að vaska upp eftir matinn því ég var að þurka og setti frekar mikið af vatni úr einhverji skál á gólfið og mátti mamma fara að skúra aftur. Það tók líka sinn tíma að opna pakkana því ég var í essinu mínu að pakka þeim inn sem ég fékk að komast með puttana í. Við vorum sammála um að þetta hefði aldrei tekið jafn langan tíma. Ég fékk fullt af fótabaðadóti og sturtusápur og bækur, foreldrahandbókina sem er bara algjör biblía og nauðsynlegt að eiga og náttföt og einhvað meira.
Á Jóladag var mömmuætt saman komin hjá Ingu og Guðna í Tálknafirði. Allir sem voru á svæðinu en á annan í jólum var útskriftarpartíið mitt. Hangikjöt með hvítri sósu og karteflum og karteflumús og svo var frönsk súkkulaðikaka og marenskaka í eftirmat. Algjört æði og vel heppnað. Og ég fékk æðislegar útskriftargjafir. Allar þær sálfræðibækur sem mér langaði í og allskonar svona útskriftardót.
Um kvöldið á mánudeginum fékk ég skelfilega vonda bakverki og var farin að æla um eitt um nóttina. Stuttu seinna bað ég pabba um að fara með mig á móti Ödda svo ég kæmist á Patró og kom ég á Patró einhverntíman aðfaranótt þriðjudagsins. Ég fékk einhver verkjalyf sem ég mátti borða en ældi þeim öllum og ældi allan þriðjudaginn. Gat ekkert borðað en var alltaf í sambandi við lækninn. Fór til hans á þriðjudagsmorguninn og hann sagði mér að vera í bandi en um kvöldið þegar ég var bara með verki og ælandi þá fór ég á sjúkrahúsið og var lögð inn um kvöldmataleitið og með næringu í æð. Fékk 2 poka af næringu í æð um kvöldið og lá inni um nóttina. Ældi svo einhvað um nóttina. Um hádegið fékk ég þriðja pokann og gat þá orðið borðað smávegis. Seinnipartinn fékk ég svo að fara heim. Var orðin ágætlega hress. Öddi var alltaf hjá mér og fékk frí í vinnunni á þriðjudag og miðvikudag til að vera hjá mér. Á fimmtudag átti ég svo að vera ein á meðan Öddi væri í vinnunni en ég var með svo mikla verki í bakinu að Öddi kom til mín á hádeginu. Hann gaf mér verkjatöflur og ég sofnaði og skánaði í bakinu.
Á Gamlársdag var ég orðin hin hressasta og við skruppum aðeins í sveitina til að sækja föt og einhvað fyrir mig. Svo var ég hjá Ödda á áramótunum. Við vorum svakalega dugleg að malla matinn. Yndisleg áramót.
Nýársdagur fór í leti og að þvo barnaföt. Þá fyrst fór í fyrstu þvottavélina barnaföt og ég veit ekki í hvað margar þvottavélar er búið að setja í barnaföt og 90% af þeim fötum eru samfellur. En samt er ekki hægt að segja að við séum búin að kaupa neitt mikið af fötum á barnið. Í gær setti ég svo fötin sem við ætlum að hafa með suður í tösku ásamt fleira dóti sem þarf að hafa suður fyrir barnið. Í gær kláraði Öddi líka að laga rúmið þannig að núna er rúmið tilbúið. Á bara eftir að búa um það. Sængin er reyndar komin í sængurver því hún á að koma með suður. Allt að gerast. Mamma er svo búin að vera að þvo það litla sem var heima. Aðalega rúmföt og tuskubleyjur. Þetta er allt að verða tilbúið enda bara tvær vikur í settan dag.
Það eru allir meira og minna kvefaðir í sveitinni en samt að hressast. Annars er allt gott að frétta og allir á lífi.
Mánudagur - fimmtudags!GuðnýÓlafía
Ég var ein í víkinni á mánudaginn á meðan fólkið fór á Patró. Þau þurftu að fara með smá af kjöti í flutningabílana ásamt ýmsu stússi. Á þriðjudag var síðan jólaferðin farin. Það var farið í kaffi í Tálknafjörð og komið við á mörgum stöðum á Patró. Ég varð svo eftir á Patró því ég átti að mæta í mæðraskoðun í gær, sem ég og gerði. Það er bara allt í góðum málum hjá mér og læknirinn sagði bara glæsilegt. Flott mál. Öddi skilaði mér svo heim í dag. Fyrsta skipti sem ég er að koma heim á Þorláksmessu.Í dag var jólatréð skreytt á meðan það var hlustað á kveðjurnar í útvarpinu. Það var skata í hádegismat sem ég var svo heppin að sleppa við en síðan var hangikjöt í kvöldmatinn.
Laufabrauðið var gert í gær en síðasta smákökutegundin var gerð í morgun ásamt marensköku.
Það er allt að verða tilbúið fyrir jólin. Ég pakkaði inn restinni af pökkunum í kvöld og bara eftir að skúra og ryksuga ásamt að skipta á rúmunum en það verður bara gert á morgun.
Gleðileg jól!
Útskriftarferð!GuðnýÓlafía
Útskriftarferðin mín varð frekar lengri en hún átti að vera.Ég fór með Ödda og Bríet með Baldri á fimmtudaginn í Grundafjörð og þar gistum við á Hótel Framnesi. Alveg yndislegt hótel eins og ég vissi.
Ég átti að vera mætt í skólann um 12 leitið á föstudeginum og var ég það. Ekkert vandamál. Tók góðan tíma í að gera mig tilbúna. Athöfnin átti að byrja um 2 en fyrst áttum við, útskriftarnemarnir að fá að borða, fara í myndatöku og taka æfingu svo við vissum einhvað hvað við ættum að gera. Ekkert mál. Allt tókst þetta vel. Athöfnin fór fram um 2 og var ég fyrst til að útskrifast úr framhaldsdeildinni á Patró. Mér finnst það súper merkilegt en er ekki sátt við að það gleymdist að boða fréttamenn á staðinn sem hefði átt að gera. Það var ekkert sérstakt veður þannig að við komumst ekki vestur eftir athöfnina og urðum að fara suður þannig að við fórum suður og vorum þar yfir helgina og komum aftur heim í dag með Baldri.
Í gær var farið í Ikea, rúmfatalagerinn, Smáralindina, hagkaup og fullt af fleiri búðum að versla smávegis. Alveg ótrúlegt hvað barnadeildirnar hafa mikið aðdráttarafl á mann. Maður er bara allt í einu kominn í barnadeildirnar, alveg sama í hvaða búð maður fer. Við keyptum meðal annars bala, dínu, bangsa, handklæði og fleira fyrir litla bumbubúann.
Það gekk svo vel að koma heim í dag. Við Öddi sváfum yfir fjörð og vorum komin heim um 7 leitið með fullan bíl af dóti og Bríet.
Það er bara þetta venjulega að frétta úr sveitinni hjá okkur. Það á eftir að baka eina smákökusort sem við höfum alltaf haft. Það er búið að vera mikill gestagangur en það er bara gaman að fá gesti. Jólapakkarnir sem á að senda eru allir komnir á stólinn og bíða eftir að pósturinn komi. Það er búið að sækja kindurnar á Gjögrana en Skugginn minn er ennþá í Hyrnunni og hefur það bara gott að hans mati. Það eru allir á lífi og hafa það gott og enginn slappur. Allt eins og það á að vera!
MIKIÐ að gerastGuðnýÓlafía
Mér vantar svo fleiri daga! Mér finnst að ég þurfi að gera svo mikið. Ég var að fá einkanir úr prófunum í dag og er með 8 í meðaleinkunn. Alveg bara súper ánægð með það. Svo er ég að fara í Grundafjörð með Baldri á morgun. Öddi og Bríet ætla með mér og útskriftin er á föstudag. Langþráður draumur að rætast.Mér gengur vel í óléttunni. Bara fimm vikur eftir í settan dag. 18. janúar :) Finn fyrir voðalega litlu nema hreifingum og hiksta í barninu. Allt eðlilegt semsagt. Er ekki með nein slit eða bjúgu eða einhvað vesen. Heppin!
Pabbi er alltaf einhverstaðar að leita að hrútum. Hann kom með 20 stikki heim af Hlíðunum núna í fyrri dag. Svo sóttum við á föstudaginn nokkrar kindur inn á Nes með einn hrút sem heitir Máni. Skuggi minn er bara ennþá í Hyrnunni fyrir ofan Nes og er bara þar sem fastast. Duglegur hrútur enda er hún Blíðukolla mín langaamma hans :)
Mamma bakaði eina sort í gær. Svokallaðar Stínukökur, veit ekki alveg hvað þær heita í alvörunni en Stína frænka bakaði þær alltaf. Hvítar, baðaðar til helminga upp úr súkkulaði. Algjört nammi.
Annars eru allir á lífi og hressir. Þokkalegt veður og enginn snjór sem mætti alveg koma þegar ég er útskrifuð. Hangikjötið að verða tilbúið og jólin bráðum að koma.
Desember að verða hálfnaðurGuðnýÓlafía
Algjört kæruleysi!Ég er líka í smá fýlu því alveg sama hvernær ég reyni að setja inn myndir þá virkar það bara aldrei. Þið verðið bara að fara og koma í kaffi til að sjá myndirnar mína. Alveg glatað. Er farin að pæla mikið í því hvar ég geti stofnað síðu þar sem ég get sett inn myndirnar á einfaldan hátt og ekkert vesen.
En það er nóg að frétta.
Pabbi ætlaði að fara að moka skít en það tókst ekki því tractorinn varð startaralaus eða einhvað þess háttar þannig að skíturinn er ennþá í fjárhúsinu. Svo er eiginlega alveg að verða búið að slátra. Bara kannski einhverjar rollur eftir ef það hefur einhver gleymst.
Pabbi átti afmæli á fimmtudaginn fyrir viku, 2.des en mamma varð 50 ára á sunnudaginn, 5.des. Það var smá kaffi sem heppnaðist bara mjög vel.
Ég skrapp til Reykjavíkur með Ödda á föstudaginn fyrir viku og við komum aftur heim á laugardagskvöldinu. Fórum til að kaupa heimfararsettið fyrir litla krílið okkar. Það styttist alveg gífurlega mikið í þetta. Ég er búin að fá vöggu og hún stendur og bíður í herberginu mínu. Pabbi hjálpaði mér að setja hana saman. Skotta er ekki neitt ofboðslega hrifin af henni. Henni er illa við börn eða er hrædd við þau.
Ég var í síðasta kaflaprófinu í gær og svo er bara útskriftin á föstudaginn í næstu viku. Alveg æðisleg að vera að klára framhaldsskólann. Gerist ekki betra. Ásta er líka komin í jólafrí. Hún fór heim í gær en ég er ennþá á Patró og ætla líklegast heim í kvöld. Þær mæðgur eru heima núna með sveittan skallan að þrífa eldhúsið. Vona að þær taki einhverjar myndir af því.
Ég og mamma og Ásta bökuðum á mánudaginn tvær smákökusortir, dropakökur og svo mínar brúnu með sykrinum sem ég veit ekki hvað heita. Svo fengum við kakó í kaffinu því pabbi og Keran fóru út í Kollsvík og náðu því sem þeir áttu eftir þar. Fengu 8 stykki. Við áttum bara eitt. Svo gerði mamma mömmukökurnar í gær.
Ætli ég láti þetta ekki bara vera gott í bili.
Föstudagur og laugardagurGuðnýÓlafía
Halló!Veðrið er fallegt en kallt og búið að vera þannig. Engin úrkoma.
Í gær var slátrað nokkrum hrútum og bakað. Við mæðgurnar þrjár bökuðum engiferkökur. Fyrsta smákökusortin í ár. Síðan vorum við að gera dúllur á sultukrukkur og gera klárt fyrir jólamarkaðinn.
Í dag var svo farið á jólamarkað á Tálknafirði og gekk alveg ljómandi vel. Aldrei gengið eins vel á jólamarkaði áður og er ég alveg svakalega glöð með árangurinn.
Ég kláraði peysuna á litla krílið mitt í gær. Ég er ægilega stolt af því og ætla að taka myndir af henni til að setja hérna inn. Alveg mjög flott hönnun hjá mér. Nánast ekkert farið eftir uppskrift og eiginlega allt mín hönnun.
Ætlaði að setja inn myndir áðan en það gekk ekki. Er orðin frekar pirruð á þessu myndaveseni því það eru öruglega ýkjulaust yfir 500 myndir sem eiga eftir að koma inn. Allar smalamennskumyndirnar og svo er ég búin að vera þokkalega dugleg að taka myndir síðan þá. En ég ætla að fara og klára að læra. Alveg að verða búin og komast í jólafrí og svo stúdentinn bráðum.
Nóvember að klárastGuðnýÓlafía
Fallegt veður. Logn og kalt. Það er snjólaust í byggð en grá fjöllin.Um síðustu helgi var ég á Reykhólum. Fór í bítið á laugardeginum og kom aftur á Patró seinnipartinn á sunnudeginum og var þá hjá Ödda þanngað til á miðvikudeginum.
Þrátt fyrir það hefur margt skeð. Pabbi er alltaf að leita að hrútum og í flest skiptin ber það árangur. Það var farið í dag út á Blakk. Pabbi fór fyrir en Ásgeir og Ásta í Völlurnar til að sækja einhvað af rollum. Það kom reyndar ekki allt heim. Það gekk svona upp og ofan en það kom einhvað heim. Þar af 5 hrútar. Við mamma vorum bara tvær heima og bökuðum hvíta lagtertu á meðan. Svo er ég alltaf að prjóna peysuna fyrir krílið sem er með settan fæðingardag eftir minna en 8 vikur :D. Ég er svona ca hálfnuð að gera hettuna. Kannski klára ég það bara á morgun.
Það eru flestir hrútarnir sem voru komnir á hús orðnir alveg lúruspakir og gimbrarnar eru að koma til líka. Ég er búin að skíra gimbrina mína undan Drottningunni og á hún að heita Sylvía. Algjör prinsessa. Prinsessan fylgir mömmu sinni og er bara dugleg kind. Þær eru algjörar hetjur þessar kindur mínar og svo fær Auður stundum að hjálpa þeim. Það er bara einn galli á þeim þegar ég ætla að nota þær sem hunda eða hjálpa mér að sækja einhverjar kindur að þá þurfa þær alltaf að tjékka á hlöðunni fyrst. Þær fara út á bakvið þar sem venjulegar kindur fara inn og út og hlaupa svo í frystihurðina og ætla inn þar. En þær eru allar hjálplegar þegar það er lokað.
Ég er í kappi við sjálfa mig þessa dagana að klára að læra og er að vona að ég geti klárað að læra allt fyrir mánaðarmót. Ég get það alveg ef viljinn er fyrir hendi. Nema á bara eftir nokkur kaflapróf í desember þá sem ég get ekki fært þanngað til í nóvember. Svo er lokapróf á þriðjudaginn í næstu viku. Eina lokaprófið en það borgar sig að lesa undir það því það gildir 70% að einkunini en þarf ekki að hafa mjög stórar áhyggjir því þessi verkefni sem ég er búin að skila inn í áfanganum sem voru bara 3 þar fékk ég 9,5 - 9,5 og 9,0 þannig að ég held ég sé í allt í lagi málum. Það eina sem er að plaga mig er enskan en ég held ég geti nú klórað mig fram úr henni.
Núna er netið komið aftur í sveitina þannig að myndirnar fara bráðum að koma. :) Góða nótt!
VikanGuðnýÓlafía
Það er margt að gerast en samt ekki. Samt hefur maður engan tíma eða nennu í að læra. En það eru 27 dagar í útskrift og orðið smá tillökun. Mér gengur vel að læra þegar ég byrja en það er svo margt annað skemmtilegt að gerast.Á miðvikudaginn þá fórum við með nokkra skrokka í kofann og kveiktum undir því. Kollsvíkurkindurnar höfðu komist út úr girðingunni og þurftum við að fara og smala þeim heim aftur. Það gekk þokkalega. Þær fóru ekki langt.
Á miðvikudaginn þá mokuðum við mamma líka út frá dúfunum og ég leyfði hænunum mínum að vera úti á meðan. Þær voru svo glaðar að fara út og voru þægar að koma inn aftur. Drottning Fjóla er bara inni og Prinsessan kemur inn stundum. Prinsessan var lengst fram á túni í morgun þegar ég var að koma frá því að gefa hænunum og kom nöldrandi heim og auðvitað fékk hún að fara inn að borða.
Það er alltaf verið að slátra einhverju. Ég er alveg í essinu mínu að föndra jólakort. Síðan er ég eiginlega búin með peysuna. Er byrjuð á hettunni. Á bara hana eftir og svo að sauma saman undir höndunum og þessi frágangur. Ásta er líka alveg að verða búin með peysuna sem hún er að gera. Reyndar er hún að gera á hálfs árs og ég á eins árs. Mamma á bara eftir frágang á barnasmekkbuxunum sem hún er búin að vera að gera en allar erum við með einhvað annað sem við erum að gera með.
Ég er núna á Patró og fer svo eldsnemma í fyrramálið á Reykhóla í síðustu svæðisleiðsagnar lotuna fyrir jól. Reikna með að koma heim í sveitina aftur á sunnudagskvöldið ef ekkert breytist.
